Velferðarsvið Fjallabyggðar auglýsir verðkönnun í reglulega ræstingu og sumarhreingerningu/sumarþrif í húsnæði tónlistarskólans á Siglufirði samkvæmt lýsingu. Heildarfjöldi fermetra í verðkönnuninni er 187,1 m².
Reiknað er með að ræsting á grundvelli verðkönnunarinnar hefjist þann 1. nóvember 2026 eða síðar í nóvember eftir samkomulagi og að gerður verði verksamningur um verkið til þriggja ára, eða til 31. október 2029
Vettvangsskoðun: Mánudaginn 28. september kl. 13:00
Opnunartími tilboða: Miðvikudaginn 7. október kl. 13:00
Opnunarstaður tilboða er: Ráðhús Fjallabyggðar, 2. hæð Gránugötu 24, Siglufirði.
Verðkönnunargögn verða afhent á bæjarskrifstofu Fjallabyggðar að Gránugötu 24 á Siglufirði frá og með 22. september 2026. Hægt er að fá verðkönnunargögn send í tölvupósti, óskir um það þurfa að berast á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is. Verðtilboðum skal skila rafrænt á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is eða í umslagi á bæjarskrifstofu Fjallabyggðar, Gránugötu 24, 580 Siglufirði fyrir kl. 13:00 mánudaginn 7. október.
Allar nánari upplýsingar veitir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Netfang: bjarkey@fjallabyggd.is Sími: 464 9100