Veist þú hver á þetta?

Sveitarfélagið Fjallabyggð auglýsir eftir þeim sem á eða gerir tilkall til fiskhjalla sem standa norðan við Kleifarveg nærri ósnum í Ólafsfirði. Fyrir liggur í hreinsunarátaki sveitarfélagsins á fjarlægja hjallana til að fegra svæðið.

Eigandi eða sá sem gerir tilkall til efnisins er beðinn um að setja sig í samband við Skipulags- og framkvæmdasvið Fjallabyggðar í gegnum netfangið taeknideild@fjallabyggð.is eða í síma 464-9100 fyrir 1. maí n.k.