Vegna veðurspár er mikilvægt að hreinsa frá niðurföllum

Umskipti verða í veðri næsta rúma sólarhringinn með hlýjindum og úrkomu. Veðurstofa Íslands hefur gefið úr gula veðurviðvörun þar sem segir að hvasst verði í veðri með 15-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s, hvassast vestantil á svæðinu. Varasamt ferðaveður.
 
Þá er rétt að árétta að einnig megi búast við talsverðri hláku um tíma með tilheyrandi vatnavöxtum og er fólk hvatt til að hreinsa frá niðurföllum.

 

Nánar má fylgjast með veðurspá með því að smella hér.
Nánar má fylgjast með fréttum af færð og ástandi vega með því að smella hér.

 

Enn er í gildi óvissustig frá Veðurstofu Íslands vegna snjóflóðahættu. Hægt er að fylgjast með tilkynningum frá snjóflóðavakt með því að smella hér.