Vegagerðin prófar varaaflsbúnað í Héðinsfjarðargöngum

Miðvikudaginn 4. mars, kl. 09 mun Vegagerðin prófa nýuppsettan varaaflsbúnað í Héðinsfjarðargöngum. Búnaðinum er ætlað að tryggja raforku á neyðarbúnaði í göngunum í allt að þrjár klukkustundir ef rafmagnslaust verði á svæðinu.

Á meðan á prófun stendur verður almenn lýsing í göngunum óvirk. Neyðarlýsing, staðsett með um 80–100 metra millibili, mun lýsa fyrsta klukkutímann. Að þeim tíma liðnum verða það eingöngu umferðaskiltin og ljósin fyrir ofan neyðarsímaskápana.

Áætlað er að rafmagnstruflanir geti verið í göngunum til klukkan 13 sama dag.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna sérstaka aðgát vegna skertrar lýsingar. Viðbragðsaðilar eru upplýstir um framkvæmdina og skulu taka mið af henni ef til útkalls kemur á þessu tímabili