Vatnslaust í íþróttamiðstöð Siglufjarðar

Vatnslaust verður í íþróttamiðstöð Siglufjarðar frá og með mánudeginum 15. júní. Gestir í tækjasal og íþróttahúsi komast því ekki á salerni, geta ekki farið í sturtu né fengið sér vatn að drekka úr krana.
 
Um tímabundið ástand er að ræða vegna framkvæmda og tilkynnt verður um leið þegar vatn er komið aftur á.
 
Tækjasalur og íþróttahús haldast opin á meðan, alla virka daga frá 06:30-19:00.