Vá hvað við eigum hæfileikaríkan hóp af ungmennum á Norðurlandi

 

Við viljum þakka öllum sem lögðu leið sína í íþróttahúsið á Ólafsfirði föstudaginn 13. mars síðastliðinn. Þar var íþróttahúsinu breytt í sannkallaða tónleikahöll þegar söngvakeppnin NorðurOrg fór fram.

Alls kepptu 15 atriði um sæti í landskeppni Samfés, Samfestingnum, og var ljóst að verkefnið var ekki auðvelt fyrir dómnefndina. Öll atriðin stóðu sig með mikilli prýði og sýndu glöggt hversu hæfileikaríkt ungt fólk Norðurland á að geyma.

Þrátt fyrir snjókomu og snjóflóðahættu mættu um 600 manns til að fylgjast með keppninni á Ólafsfirði, sem sýnir vel þann mikla áhuga og stuðning sem viðburðurinn naut.Til þess að svona stór og glæsileg keppni geti orðið að veruleika koma margar hendur að undirbúningi og framkvæmd. Setja þarf upp hljóðkerfi og svið, útbúa áhorfendasvæði, færa til búnað í íþróttahúsinu, setja upp sjoppu og halda utan um skipulagið í heild. Margir komu að viðburðinum og eiga miklar þakkir skildar.

Sérstakar þakkir fá starfsmenn HS Kerfis, starfsfólk áhalda- og íþróttahúss, nemendaráð og nemendur Grunnskóla Fjallabyggðar og félagsmiðstöðvarinnar Neon, Karlakór Fjallabyggðar, Segull, Smárinn, Kjörbúðin, Vélsmiðja Einars, Tjarnarborg og Höllin, auk dómara, skipuleggjenda og starfsfólks félagsmiðstöðva á Norðurlandi, allt frá Hvammstanga til Þórshafnar.

Framtíðin er sannarlega björt.