Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í endurnýjun sundlaugalagna og raflagna í lagnarými sundlaugar ásamt smíði á klórgeymslu við Sundlaug Siglufjarðar skv. útboðsgögnum AVH.
Helstu magntölur:
- Steypumót 74 m²
- Steinsteypa 7 m³
- Þakfrágangur 8 m²
- Rafstrengir 750 m
- Aðaltafla 1 stk
- Fjarskiptaskápur 1 stk
- Fráveitulagnir 140 m
- Neysluvatnslangir 200 m
- Hitalagnir 240 m
- Sundlaugarlagnir 190 m
- Loftræsing 700 m³/h
Verktími er frá 15. júní 2026 til 14. ágúst 2026.
Ósk um afhendingu rafrænna útboðsgagna skal senda á netfangið avh@avh.is og verða þau afhent frá og með 16. desember n.k.
Tilboð skulu berast rafrænt á netfangið avh@avh.is fyrir kl. 13:00 fimmtudaginn 29. janúar og verða tilboðin opnuð kl. 13:30 sama dag hjá AVH í Kaupangi á Akureyri í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Bjóðendum mun gefast kostur á að fylgjast með opnun tilboða á fjarfundi óski þeir þess.
Einnig hefur verið auglýst eftir tilboðum á útboðsvefnum.