Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra opinn fyrir umsóknir.

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra er nú opinn fyrir umsóknir. Sjóðurinn styður fjölbreytt verkefni á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar, menningar og samfélagsþróunar á Norðurlandi eystra.

Rafrænn kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 29. september kl. 12:00 á Teams. Á fundinum verður farið yfir helstu atriði varðandi umsóknir í sjóðinn og umsóknarferlið.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um sjóðinn áður en umsókn er send inn. Einnig hægt að bóka tíma hjá fulltrúa SSNE í Fjallabyggð, annalind@ssne.is

Allar nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð, úthlutunarreglur og umsóknir má finna á Uppbyggingarsjóður | SSNE.is