Unnið við útskipti á neyðarsímaskápum í Héðinsfjarðargöngum, frá Siglufirði yfir í Héðinsfjörð.

Í dag, mánudaginn 9. nóvember, til og með föstudagsins 13. nóvember verður unnið við útskipti á neyðarsímaskápum í Héðinsfjarðargöngum, frá Siglufirði yfir í Héðinsfjörð. Unnið verður bæði í útskotum og milli útskota. Þegar unnið verður milli útskota verður umferðarhraði tekinn vel niður og umferðarstýring við verkstað. Vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitssemi, virða hraðatakmörkun og sýna þolinmæði meðan á framkvæmd stendur.