Unnið við útskipti á neyðarsímaskápum í Héðinsfjarðargöngum

Frá og með deginum í dag, þriðjudeginum 3. nóvember, og til og með föstudeginum 6. nóvember verður unnið við útskipti á neyðarsímaskápum í útskotum Héðinsfjarðarganga, á kaflanum frá Siglufirði yfir í Héðinsfjörð.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitssemi meðan á framkvæmdum stendur, virða merkingar og aka með gát um vinnusvæðið.