Haukur, Björn Helgi, Karen Sif og Hólmfríður Dögg
Ungmenni kalla eftir auknum áhrifum – fulltrúar frá Fjallabyggð sóttu ráðstefnu ungmennaráða
Á ráðstefnu ungmennaráða sveitarfélaga sem haldin var 5. desember síðastliðinn komu saman rúmlega 150 fulltrúar víðs vegar að af landinu. Þar kom skýrt fram að ungt fólk vill gegna stærra hlutverki í mótun samfélagsins og taka virkan þátt í stefnumótandi ákvarðanatöku sveitarfélaga.
Ungmennin lögðu áherslu á bættar samgöngur, aukið öryggi í nærumhverfi, sterkari innviði og jafnræði í skólamálum. Þá voru íþróttaaðstaða, frístundir og aðgengi að sálfræði- og heilbrigðisþjónustu einnig í forgrunni. Skýr vilji kom fram um að ungmennaráð fengju skýrara hlutverk innan stjórnsýslu og raunverulegt samráð við kjörna fulltrúa.
Þrír fulltrúar ungmennaráðs Fjallabyggðar tóku þátt í ráðstefnunni: Björn Helgi Ingimarsson úr 9. bekk, Hólmfríður Dögg Magnúsdóttir úr 10. bekk og Haukur Rúnarsson úr MTR, ásamt Kareni Sif Róbertsdóttur, umsjónarmanni félagsmiðstöðvarinnar NEON. Þátttaka þeirra er mikilvægt framlag til þess að rödd ungs fólks í Fjallabyggð fái að heyrast á landsvísu.
Ráðstefnan sýndi skýrt að ungmenni eru tilbúin að leggja sitt af mörkum og vilja vera virkir þátttakendur í ákvarðanatöku – ekki aðeins áheyrendur heldur hluti af lausninni.
