Trilludagar 2026 – fjölskylduhátíð á Siglufirði laugardaginn 25. Júlí

Siglufjörður mun iða af lífi þegar hin vinsæla fjölskylduhátíð Trilludagar verður haldin laugardaginn 25. júlí 2026. Dagskráin hefst kl. 10:00 á hafnarsvæðinu þar sem gestum býðst fjölbreytt skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Helgin hefst þó strax á föstudeginum 24. júlí þegar aflraunakeppnin Víkingurinn 2026 kemur til Fjallabyggðar með tvær spennandi keppnisgreinar. Fyrri greinin, Mylluganga, fer fram við Tjarnarborg í Ólafsfirði kl. 14:00, en síðari greinin, Drumbalyfta, hefst við Kaffi Rauðku á Siglufirði kl. 16:00. Keppnin verður sannkölluð kraftasýning og eru íbúar og gestir hvattir til að mæta á svæðið og hvetja keppendur áfram.

Trilludagar eru einstök hátíð þar sem menning, samvera og gleði fara saman. Hátíðin er haldin af Fjallabyggð í öflugu samstarfi við eldhressa sjómenn, Kiwanisklúbbinn Skjöld í Fjallabyggð, Slökkvilið Fjallabyggðar, Björgunarsveitina Stráka og unglingasveitina SmáDjarf í Fjallabyggð sem leggja öll sitt af mörkum til að skapa örugga og skemmtilega upplifun fyrir gesti.

Eitt af því sem gerir Trilludaga svo sérstaka er að gestum gefst kostur á að stíga um borð í trillur og sigla út á fjörðinn þar sem rennt er fyrir fisk. Þegar komið er aftur að landi taka Kiwanismenn á móti aflanum, flaka hann og grilla á hafnarbakkanum og býðst gestum að smakka nýgrillaðan fisk. Kjörbúðin býður einnig upp á grillaðar pylsur og drykki fyrir börnin og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

Á bryggjunni verða hoppukastalar sem gleðja yngstu gestina og heimamenn sjá um að skapa skemmtilega stemningu með lifandi tónlist yfir daginn. Gestir geta einnig fylgst með Rúnari Ástvaldssyni handtálga íslenska fugla og kynnt sér fallegt handverk hans. Slökkvilið Fjallabyggðar verður til aðstoðar á bryggjunni og Björgunarsveitin Strákar ásamt unglingasveitinni SmáDjarfur annast gæslu á sjó og landi til að tryggja öryggi gesta.

Klukkan 15:00 hefst hin sívinsæla síldarsöltun við Róaldsbrakka þar sem gestir geta kynnst gömlum vinnubrögðum og upplifað stemninguna frá síldarárunum á Siglufirði. Að henni lokinni verður slegið upp í dans á bryggjunni.

Trilludagar eru hátíð þar sem fjölskyldur koma saman og gestir á öllum aldri geta notið skemmtunar í einstakri hafnarstemningu.

Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir á Trilludaga 2026 í Fjallabyggð.

Trilludagar