Tjaldsvæðið í miðbæ Siglufjarðar opnað

Tjaldsvæðið í miðbæ Siglufjarðar opnað

Tjaldsvæðið í miðbæ Siglufjarðar hefur nú verið opnað fyrir sumarið og tekið á móti fyrstu gestunum. Um er að ræða vinsælt og vel búið svæði við höfnina, með aðgengi að salerni, sturtum, þvottavél og rafmagni. Hin svæðin, Rammalóðin og Stóri Boli,  verða opnuð von bráðar, um leið og aðstæður leyfa.

Í sumar hefur ný Parka bókunarþjónusta verið tekin í notkun, sem einfaldar gestum að bóka stæði fyrir vagna, húsbíla og tjöld á netinu. Bókanir fara fram í gegnum vefinn parka.is/siglufjordur.

Ný facebooksíða fyrir svæðin á Siglufirði er https://www.facebook.com/siglufjordur.campsite

Verið hjartanlega velkomin – við hlökkum til að sjá ykkur í sumar!