Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti þann 19. mars 2026 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi athafnasvæðis á Þormóðseyri á Siglufirði skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin tekur til lóðarinnar Vetrarbrautar 8–10 og felur í sér nýjan byggingarreit á suðausturhluta lóðarinnar vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar nýs húss undir baðstofu og tengda þjónustu. Á þessum stað stóð áður hús sem var sambyggt núverandi verksmiðju.
Nánari upplýsingar eru á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar undir slóðinni: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/372
____________________________________________________________________________
Tillaga að nýju deiliskipulagi liggur frammi á upplýsingatöflu á 3.hæð Ráðhúss Fjallabyggðar við Gránugötu 24 á Siglufirði og á nýjum vef Skipulagsstofnunar, www.skipulagsgatt.is.
Frestur til að skila inn athugasemdum er frá 30. mars til og með 11. maí 2026. Eingöngu er tekið við athugasemdum og ábendingum á rafrænan hátt í gegnum skipulagsgátt, bein slóð inn á málið er: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/372
Hægt er að óska eftir nánari upplýsingum hjá skipulagsfulltrúa í gegnum netfangið taeknideild@fjallabyggd.is.
Pálmi Blængsson, verkefnastjóri tæknideildar.
Smelltu á myndina hér fyrir neðan til þess a- sjá hana stærri.
