Þjóðlagahátíðin á Siglufirði -  Fljúga hvítu fiðrildin - 2. - 6. júlí

Þjóðlagahátíðin á Siglufirði -  Fljúga hvítu fiðrildin - 2. - 6. júlí 2025

Hún ber yfirskriftina "Fljúga hvítu fiðrildin" og sýnir gestum inn í heim tónlistar ólíkra landa og menningarheima.

Á hátíðinni er boðið upp á ókeypis námskeið í ókeypis námskeið í ungverskum og norskum þjóðdönsum og ískri, finnskri og sænskri þjóðlagatónlist auk Þjóðlagaakademíunnar sem er alþjóðlegt námskeið um íslenska og erlenda þjóðlagatónlist. Fyrirlestrar eru ýmist á íslensku eða ensku. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Gunnsteinn Ólafsson.

Dagskrá Þjóðlagahátíðarinnar 2. - 6. júlí 2025

Ókeypis námskeið á Þjóðlagahátíðinni

Fimmtudaginn 3. júlí og föstudaginn 4. júlí 2025.

Námskeiðin eru ókeypis. Athugið að fjöldi nemenda getur verið takmarkaður.

Námskeiðin fara fram 3. og 4. júlí, tvisvar þrjá tíma í senn, ýmist kl. 9.00-12.00 eða 14.00-17.00.

  • Írsk þjóðlagatónlist. Kennarar: Kathleen Dineen og Gerry O’Connor Írlandi 14.00-17.00 báða dagana. Námskeiðið er í Tónskóla Siglufjarðar, Aðalgötu, á móti bakaríinu.
  • Finnskir og norrænir söngvar. Kennari: Anna Fält, Finnlandi. 9.00-12.00 báða dagana. Námskeiðið er í Grunnskólanum, gengið inn frá Eyrargötu.
  • Norsk þjóðlög og þjóðdansar. Kennarar: Ingrid Lingaas Fossum og Lars Fivelstad Smaaberg, Noregi. 14.00-17.00 báða dagana. Námskeiðið er í íþróttasal Grunnskólans, gengið inn í enda hússins á horni Eyrargötu og Vetrarbrautar.
  • Ungverskir þjóðdansar. Kennari: Viktoria Köhalmi, Ungverjalandi. 9.00-12.00 báða dagana. Námskeiðið er í íþróttasal Grunnskólans, gengið inn í enda hússins á horni Eyrargötu og Vetrarbrautar.
  • Rímnalaganámskeið fyrir börn í eldri deildum leikskóla (4-5 ára). Kennari: Ari Hálfdán Aðalgeirsson. 9.00-12.00. Námskeiðið er í Tónskóla Siglufjarðar, Aðalgötu, á móti bakaríinu. Námskeiðinu lýkur með stuttum tónleikum kl. 11.00 föstudaginn 4. júlí í Tónskólanum. Hópur barna frá Laufásborg í Reykjavík tekur þátt.

Skráning í Þjóðlagasetrinu á Siglufirði frá 1. júní í síma 664 2300 eða á thjodlagasetur@gmail.com.

Sjá einnig Þjóðlagaakademíuna þar sem íslensk þjóðlög eru í öndvegi. Þjóðlagaakademían er einnig ókeypis líkt og námskeiðin.

Skráning á námskeið.

Þjóðlagaakademían

Þjóðlagaakademían 3. - 5. júlí 2025

Þjóðlagaakademían er ókeypis.

  • Námskeið um íslenska þjóðlagatónlist – opið öllum almenningi. Fyrirlestrar eru ýmist á íslensku eða ensku. Ef erlendir gestir sækja akademíuna er eingöngu töluð enska
  • Námskeiðið fer fram á kirkjuloftinu í Siglufjarðarkirkju.
  • Umsjónarmaður: Gunnsteinn Ólafsson

Í Þjóðlagaakademíunni verða kennd íslensk þjóðlög, þ.á.m. íslensk tvísöngslög. Þá verða dansaðir þjóðdansar og kennt að leika á langspil og íslenska fiðlu. Einnig verða haldin erindi um erlenda þjóðlaga- og miðaldatónlist. Hér má sjá dagskrá þjóðlagaakademíunnar frá fyrri árum.

Þjóðlagaakademían fer fram á kirkjuloftinu, á efstu hæð Siglufjarðarkirkju. Skráning á thjodlagasetur@gmail.com.

Fimmtudagur 3. júlí 2025

10.00-11.00 – Írskir söngvar – Gerry O’Connor, Írlandi
11.00-12.00 – Þjóðlagahefðin í Numedal – Even Tråen harðangursfiðluleikari, Noregi
13.00-14.00 – Finnsk þjóðlagatónlist – Anna Fält, Finnlandi
14.00-15.00 – Jóðl í Bæjaralandi – Matthias Deger, Bæjaralandi
15.00-16.00 – Bjarni Þorsteinsson og þjóðlagasöfnun hans – Gunnsteinn Ólafsson

Föstudagur 4. júlí 2025

10.00-11.00 – Tilvera kvenna í þjóðlögum – Tríó TRËI, Sviss
11.00-12.00 – Rímnalögin – Gunnsteinn Ólafsson
13.00-14.00 – Um langeleik, þjóðdansa, harðangursfiðlu og kraviklýru – Ingrid Lingaas, Lars Fivelstad Smaaberg, Bård-Vegard Bjørhusdal, Håkon Brøten og Åshild Wetterhus, Noregi
14.00-15.00 – Lírukassinn: hljóðfæri fátæka mannsins – Guðmundur Guðmundsson
15.00-16.00 – Langspil og íslensk fiðla – Eyjólfur Eyjólfsson og Gunnsteinn Ólafsson

Laugardagur 5. júlí 2025

10.00-11.00 Íslenskir þjóðdansar. Atli Freyr Hjaltason og Elizabeth Katrín Mason
11.00-12.00 Norskir þjóðdansar. Ingrid Fossum og Lars Smaaberg, Noregi

Nemendur sem óska að fá einingar fyrir Þjóðlagaakademíuna í tengslum við háskólanám sitt þurfa að skrifa verkefni um íslensk þjóðlög og skila því fyrir 15. ágúst. Skráning á thjodlagasetur@gmail.com eftir 1. júní.

Tónleikastaðir – Venues

Miðasala er á tix.is. Sjá nánar á heimasíðu hátíðarinnar www.siglofestival.com.