Sveitarfélagið Fjallabyggð var eitt þeirra sveitarfélaga sem hlutu viðurkenningu Jafnréttisvogarinnar, hreyfiaflsverkefnis FKA, árið 2026.

Jafnvægisvogin, hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), hélt 14. október sína árlegu viðurkenningarathöfn en athöfnin var fyrst haldin árið 2019. Í ár er fjöldi viðurkenningarhafa alls 163 en það eru þeir þátttakendur sem náð hafa markmiði verkefnisins um jöfn kynjahlutföll í framkvæmdastjórn/efsta lagi stjórnunar.

Dómsmálaráðuneytið, Creditinfo, Deloitte, PiparTBWA, RÚV, Sjóvá, Orkuveitan og Nasdaq Iceland eru bakhjarlar og samstarfsaðilar Jafnvægisvogarinnar.


Hver viðurkenningarhafi fær tré að gjöf þar sem fulltrúar taka þátt í gróðursetningu í Jafnréttislundi FKA í Heiðmörk. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Fjallabyggðar, veitti viðurkenningunni viðtöku.