Sveitarfélagið Fjallabyggð óskar eftir verðtilboði í LED- væðingu ljósa í grunnskólanum á Siglufirði

Verkið snýst um að skipta út öllum ljósum í grunnskólanum á Siglufirði fyrir LED ljós. Fjarlægja þarf eldri ljós og farga þeim. Gert er ráð fyrir að verkefnið verði unnið á tímabilinu 15. júní 2026- 31. júlí 2026. Til að fá nánari upplýsingar og magntölur á að hafa samband við sviðsstjóra Skipulags- og framkvæmdasviðs, Gísla Davíð Sævarsson í gegnum netfangið gisli@fjallabyggd.is

Verðtilboðum skal skila á netfangið gisli@fjallabyggd.is fyrir kl.14:00 föstudaginn 17.apríl 2026