Sumarstörf hjá Fjallabyggð

Sumarstörf hjá Fjallabyggð

Eftirtalin störf eru laus til umsóknar:

Yfirmaður umhverfisverkefna.

Auglýst er eftir yfirmanni umhverfisverkefna. Hann skipuleggur og stýrir öllum umhverfisverkefnum í samráði við sviðsstjóra tæknideildar, ásamt því að hafa umsjón með sláttugengi og flokksstjórum Fjallabyggðar. Æskilegt starfstímabil er frá 18. maí til 18. september. Leitað er að einstaklingi sem er 25 ára eða eldri, skipulagður og sjálfstæður í starfi.

Þjónustumiðstöð og vinnuskóli Fjallabyggðar auglýsa eftir fólki í almenn störf og flokkstjórum í vinnuskóla.

Æskilegt starfstímabil er frá 1. júní til 28. ágúst. Umsækjendur þurfa að vera 18 ára og eldri. Flokksstjórar stjórna daglegu starfi vinnuflokka skólans og stuðla að reglusemi, ástundun og góðri umgengni unglinganna sem starfa í vinnuskólanum. Önnur störf eru m.a. fegrun umhverfisins, málningarvinna, viðhald og önnur almenn störf þjónustumiðstöðvar Fjallabyggðar.

Þjónustumiðstöð Fjallabyggðar auglýsir eftir starfsfólki í sláttugengi til að sinna slætti og umhirðu á opnum svæðum.

Æskilegt starfstímabil er frá 1. júní til 28. ágúst. Umsækjendur þurfa að vera 16 ára (f. 2010 og eldri).

Umsóknarfrestur allra starfa er til og með 1. maí. Sótt er um störfin hér