Vegna framkvæmda má búast við tímabundnum rafmagnstruflunum í Fjallabyggð aðfaranótt fimmtudagsins 6. ágúst.

Vegna framkvæmda má búast við tímabundnum rafmagnstruflunum í Fjallabyggð

Ólafsfjörður

  • Búast má við stuttu rafmagnsleysi einhvern tíma milli kl. 23:00 og 23:59 miðvikudaginn 5. ágúst.

  • Einnig má búast við stuttri truflun milli kl. 04:05 og 05:00 fimmtudaginn 6. ágúst.

Siglufjörður

  • Gæti komið til rafmagnstruflana frá kl. 23:00 miðvikudaginn 5. ágúst til kl. 05:00 fimmtudaginn 6. ágúst.

Við biðjum íbúa og aðra notendur velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir sýndan skilning. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð Rarik í síma 528-9000.