Starfsfólk óskast til starfa í Frístund- og lengda viðveru við Grunnskóla Fjallabyggðar
Óskað er eftir starfsfólki í Frístund og lengda viðveru. Vinnutími er frá kl. 13:15 til kl. 16:00 alla virka daga. Aðalstarfsstöð er í húsnæði félagsmiðstöðvarinnar, Suðurgötu 2 - 4 Siglufirði.
Starfið felst í að vinna að frístundastarfi barna eftir að hefðbundinni kennslu lýkur á daginn. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt í lifandi umhverfi þar sem áhersla er lögð á góð samskipti.
Umsóknum um starfið skal skilað, ásamt kynningarbréfi og/eða ferilskrá, í tölvupósti á netfang Ásdísar Sigurðardóttur, asdiss@fjallabyggd.is eða Karen Sif Róbertsdóttur karen.sif.robertsdottir@fjallabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 4. september 2026.
Umsækjendur þurfa að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá. Nánari upplýsingar fást hjá Ásdísi í síma: 898-3310.