Starfsfólk óskast í skammtímadvöl fyrir fatlað fólk

Starfsfólk óskast í skammtímadvöl fyrir fatlað fólk

Skammtímadvöl er tímabundin dvöl fyrir fötluð börn og ungmenni með umfangsmiklar og langvarandi þjónustuþarfir.

Mikið er lagt upp úr góðri liðsheild og samvinnu á staðnum.

Um er að ræða sólarhringsþjónustu svo gengið er út frá því að starfsfólk vinni á breytilegum vöktum, helgar eru dag-, kvöld- og næturvaktir.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita þjónustunotendum einstaklingsmiðaðan stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til þátttöku í samfélaginu
  • Veita þjónustunotendum félagsskap og taka þátt í skipulagi hvers dags
  • Almenn heimilisstörf

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks og reynsla af störfum með fötluðu fólki er mikill kostur
  • Góð þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Framtaksemi og samviskusemi
  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Líkamleg geta til að sinna verkefnum á vinnustað
  • Bílpróf

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 14. ágúst nk. Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir bjarkey@fjallabyggd.is

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.