Sett hefur verið upp spjallsvæði á vefnum fyrir umræður um hátíðir og viðburði í Fjallabyggð. Þeir sem skrá sig sem notendur geta tekið þátt í þeim umræðum
sem búið er að stofna, eða hafið umræður um nýtt umræðuefni að vild, að því
gefnu að það hafi skírskotun til meginefnis spjallborðsins.
Þann 24. September síðastliðinn var haldinn
súpufundur um
árlega menningarviðburði og hátíðir sem haldnar eru á Siglufirði. Á
fundinum
var rætt um skipulag og framkvæmd viðburða, fjármögnun og möguleika á
meira
samstarfi og aukinni þátttöku íbúa í undirbúningi þeirra. Framsögumenn
kynntu
þá viðburði sem þeir standa að baki og að því loknu ræddu fundarmenn um
viðkomandi viðburði, framkvæmd þeirra, skipulag, fjármögnun og
fleira. Að fundi loknum voru fundarmenn sammála um að koma þyrfti á
einhverskonar vettvangi fyrir áframhaldandi umræður. Spjallborðið er
tilraun til að skapa slíkan vettvang.
Spjallborðið er að finna á slóðinni http://hatidir.fjallabyggd.is. Íbúar
og aðrir áhugasamir eru hvattir til að taka þátt í umræðunni og koma skoðunum
sínum á framfæri við skipuleggjendur hátíðanna og aðra hagsmunaaðila á
spjallborðinu. Þar sem um tilraun er að ræða er viðmót spjallborðsins enn sem
komið er á ensku, en umræðurnar fara að sjálfsögðu fram á íslensku. Vonandi
lætur fólk það ekki aftra sér frá því að láta ljós sitt skína.
Tekið skal fram að spjallborðið er ekki á vegum Fjallabyggðar heldur er hér um grasrótarverkefni að ræða.