Snjóflóðavarnarvirki virkuðu vel í snjóflóðahrinum

Samkvæmt samantekt Veðurstofunnar virkuðu snjóflóðamannvirki sem reist hafa verið á norðanverðum Tröllaskaga og á Vestfjörðum afar vel í snjóflóðahrinum dagana 15. – 19. mars og 23. – 27. mars s.l.

Þrjú eða fjögur snjóflóð féllu niður með leiðigörðunum Stóra- og Litla-Bola á Siglufirði og niður fyrir enda garðanna. Þau eru talin hafa náð nokkuð upp á garðana, ummerki snjóflóðsins á Stóra-Bola má sjá u.þ.b. miðja vegu frá botni á þeirri hlið garðsins sem snýr að fjallinu. Nokkur snjóflóð féllu úr hlíðum vestan Siglufjarðar sem vita mót austri eins og hlíðin ofan bæjarins, m.a. mjög stórt flóð úr Selskál skammt norðan þéttbýlisins, og bæði úr Jörundarskál og Strengsgiljum sunnan byggðarinnar þar sem eru þekkt upptaksvæði.

Reist hafa verið umfangsmikil stoðvirki til þess að draga úr hættu á snjóflóðum úr Hafnarfjalli ofan þéttbýlisins við Siglufjörð. Upptakasvæðin þar sem stoðvirkin standa vita mót austri eins og mörg upptakasvæði þar sem snjóflóð féllu í hrinunni. Ekki féllu snjóflóð úr svæðunum með stoðvirkjum og má leiða líkur að því að snjóflóðavarnirnar hafi komið í veg fyrir að snjóflóð færu þar af stað en ekki er unnt að leggja beint mat á það hversu stór snjóflóð hefðu getað fallið eða hversu langt þau hefðu náð.

Samantekt Veðurstofunnar í heild má sjá hér.


Varnargarðar og stoðvirki á Siglufirði. Ljósm.: Gestur Hansson, 22. febrúar 2026. - Mynd fenginn af vef Veðurstofu Íslands.