Smíðavellir hefjast 11. júní

Smíðavellirnir verða opnir í júní fyrir alla krakka á grunnskólaaldri í Fjallabyggð.

Smíðavellirnir á Ólafsfirði verða í umsjón hestamannafélagsins Gnýfara á Frímerkinu.
Smíðavöllurinn á Ólafsfirði verður opinn frá kl. 10:00-12:00 eftirfarandi daga: 11 - 13. júní, 18-20. júní og 23. - 26. júní

Smíðavellirnir á Siglufirði verða í umsjón SSS á túninu við Mjölhúsið.
Smíðavöllurinn á Siglufirðii verður opinn frá kl. 10:00-12:00 eftirfarandi daga: : 11- 13. júní, 16 júní og 18 – 20. júní.

Að námskeiðum loknum verður grillveisla á hvorum stað fyrir börn og foreldra. Ekki þarf að skrá börnin og er þátttaka ókeypis.

Börn sem sækja smíðavellina eru á ábyrgð foreldra og er frjálst að koma og fara á þeim tíma sem smíðavellir eru opnir.
Börn sem sækja smíðavelli fá timbur og nagla á staðnum en þurfa sjálf að koma með hamar og sög.