Mynd: Landhelgisgæslan
Á fundi bæjarráðs Fjallabyggðar þann 12. febrúar s.l. óskaði bæjarstjóri heimildar til þess að ganga til viðræðna við Landhelgisgæslunar (LHG) um framlengingu samnings á milli aðila um þjónustu í Fjallabyggðarhöfn á Siglufirði og var lagður til grundvallar gildandi samningur sem undirritaður var árið 2022.
Nýr og framlengdur samningur var tilbúinn til undirritunar s.l. vor en bæjarstjóri f.h. Fjallabyggðar og Auðunn Kristinsson framkvæmdastjóri siglingasviðs LHG undirrituðu samninginn um þjónustu Fjallabyggðarhafna við varðskipið Freyju þann 20.ágúst s.l. og gildir sá samningur til 30.apríl árið 2030.
Samningnum, líkt og fyrri samningi, er ætlað að vera rammi utan um samstarf Fjallabyggðar og Landhelgisgæslu Ísland er varða markmið aðila að tryggja almannavarnir og öryggi á norðurslóðum og tryggja öflugri leitar – og björgunarþjónustu á svæðinu norðan Íslands.
Bæjarráð Fjallabyggðar staðfesti samninginn á fundi sínum 27.ágúst, og fagnar því að Freyja eigi áfram heimahöfn á Siglufirði sem er mikilvægt vegna markmiðs aðila að tryggja almannavarnir og öryggi á norðurslóðum.