Rekstrarniðurstaða Fjallabyggðar mun jákvæðari en áætlun gerði ráð fyrir og litlar skuldir

Samkvæmt framlögðum ársreikningi er rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B- hluta jákvæð um ríflega 240 milljónir króna að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða, sem er talsvert betra en fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir en áætlun með viðaukum gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu að upphæð um 45 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar er jákvæð um 484 milljónir króna fyrir afskriftir og fjármagnsliði.

Vaxtaberandi skuldir sveitarfélagsins við lánastofnanir eru kr. 120.000.000 í A hluta sem er með því lægsta sem gerist á landinu. Það þýðir um það bil 60.000 krónur á hvern íbúa og hefur skuldastaða ekki breyst frá fyrra ári.

Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um kr. 248.598.000 en var um 100 milljónum lægri árið 2024 eða kr. 148.674.000 milljónir. Fjárfesting ársins nam 530 milljónum. Handbært fé frá rekstri samstæðu A- og B- hluta var 574 milljónir og hækkar á milli ára um 90 milljónir. Veltufé frá rekstri samstæðu A- og B-hluta , þ.e. það fjármagn sem m.a. hægt er að nýta til frekari fjárfestinga var 771 milljón árið 2025 en var um 348 milljónir árið 2024 og ríflega tvöfaldast því á milli áranna 2024 og 2025.

Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam kr. 4.918.671 samkvæmt efnahagsreikningi, en eigið fé A hluta um kr. 4.245.511.

Rekstur sveitarfélagsins var nokkuð stöðugur á árinu. Gjöld voru umtalsvert hærri heldur en áætlun gerði ráð fyrir og skýrist það að mestu leyti af auknum útgjöldum vegna úrræða í félagsþjónustu sem greiddar eru af ríkinu í gegnum ráðuneyti og jöfnunarsjóð og skýrir þá jafnframt þær auknu tekjur sem fram koma í ársreikningi. Hafnarsjóður skilar jafnframt betri niðurstöðu en áætlanir gerðu ráð fyrir og skýrist það af auknum tekjum vegna aflagjalds sem og afkomu vegna komu skemmtiferðaskipa á árinu.

Að öðru leyti var rekstur málaflokka almennt í samræmi við fjárhagsáætlun og launakostnaður í heild var umtalsvert lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir þrátt fyrir verulegar launahækkanir einstakra kjarasamninga.

Af einstökum málaflokkum eru félagsþjónusta og fræðslumál nokkuð yfir fjárhagsáætlun sem skýrist annars vegar af sérstökum aðstæðum félagsþjónustunnar sem ríkið greiðir svo fyrir og hins vegar af launahækkunum umfram áætlun í fræðslumálum.

Áfallnar lífeyrisskuldbindingar eru um 100 milljónum króna hærri heldur en gert var ráð fyrir eða um 290 milljónir og skýrist það fyrst og fremst af miklum launahækkunum en skuldbindingarnar, sem ráðast að fullu leyti af utanaðkomandi aðstæðum, reiknast til rekstrargjalda á árinu. Þrátt fyrir þessa hækkun um ríflega 200 milljónir á lífeyrisskuldbindingum frá árinu 2024 er rekstrarniðurstaða jákvæð um 240 milljónir.

Jákvæð niðurstaða ársreiknings fyrir árið 2025 styrkir enn frekar fjárhagslega stöðu Fjallabyggðar sem gefur aukna möguleika á nauðsynlegum fjárfestingum til lengri tíma litið.

Bæjarstjórn samþykkti á síðasta bæjarstjórnarfundi framlagðan ársreikning 2025 og vísar honum til seinni umræðu í bæjarstjórn.