Páskar í Fjallabyggð

Páskarnir nálgast og nóg verður um að vera í Fjallabyggð. Íbúar og gestir geta hlakkað til fjölbreyttrar dagskrár þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi hvort sem það er útivist, menning, samvera eða skemmtilegir viðburðir.

Hér má sjá yfirlit yfir viðburði og opnunartíma þjónustuaðila yfir páskana. Við hvetjum fólk til að kynna sér dagskrána vel og taka þátt í því sem heillar.

Við óskum öllum gleðilegra páska og hlökkum til að sjá ykkur njóta þess sem Fjallabyggð hefur upp á að bjóða.