Óvissustig vegna veðurs og úrkomu

Almannavarnir hafa gefið út óvissustig á svæði Fjallabyggðar vegna veðurs og úrkomu í dag og fram á morgundaginn.

Reiknað er með mikilli rigningu síðdegis í dag auk þess sem snjór sem sest hefur í fjöll bráðnar með tilheyrandi leysingum og hugsanlegum skriðuföllum.

Mikil úrkoma og leysingar munu að líkindum valda álagi á fráveitukerfi á Siglufirði og Ólafsfirði en þó líklega meira á Ólafsfirði þar sem búist er við mjög mikilli úrkomu samkvæmt upplýsingum veðurfræðings.

Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Fjallabyggðar auk verktaka hafa í aðdraganda veðursins farið yfir alla fráveitubrunna og -dælur og skoðaðir hafa verið aðrir helstu áhættuþættir. Þá hafa varadælur verið gerðar tilbúnar og Slökkvilið Fjallabyggðar búið að yfirfara allan sinn búnað en nýverið tók liðið í notkun nýjar og öflugar dælur sem eru til taks ef þörf er á.

Við hvetjum fólk almennt til þess að tryggja að niðurföll séu opin og að grunnvatnsdælur séu virkar þar sem þær eru til staðar.

Viðbragðsaðilar í Fjallabyggð verða til taks þurfi fólk á aðstoð að halda og hafa þarf samband í gegnum 112

Nánari upplýsingar um veður, færð og stöðu almannavarna má sjá hér að neðan:

Veðurstofa Íslands: www.vedur.is
Almannavarnir: https://www.facebook.com/Almannavarnir
Lögreglan: https://www.facebook.com/logreglannordurlandieystra
Vegagerðin: www.umferdin.is