Veðurstofan hefur gefið út veðurviðvaranir vegna óveðurs sem gengur yfir landið í dag, föstudaginn 13. nóvember. Samkvæmt uppfærðum veðurspám er útlit fyrir að veður versni fyrr en upphaflega var gert ráð fyrir, meðal annars á Tröllaskaga og Norðurlandi.
Gert er ráð fyrir vestan- og norðvestanátt, 10–18 m/s, með snjókomu en þegar líður á daginn og í kvöld er útlit fyrir norðanstórhríð með vindhraða allt að 18–25 m/s.
Búast má við mjög erfiðum akstursskilyrðum, skertu skyggni og að færð spillist verulega.
Lögreglan á Norðurlandi hefur jafnframt varað við versnandi aðstæðum á fjallvegum. Vegagerðin hefur tilkynnt um lokun Víkurskarðs kl. 12:00 og óvissustig á Öxnadalsheiði frá kl. 13:00. Þá tekur óvissustig gildi á Vatnsskarði, Þverárfjalli og Holtavörðuheiði kl. 14:00. Reikna má með að vegum verði lokað með skömmum fyrirvara ef aðstæður versna.
Veðurstofan hefur einnig uppfært tímasetningu appelsínugulrar veðurviðvörunar fyrir Norðurland vestra og gildir hún nú frá kl. 17:00 til 01:00.
Íbúar Fjallabyggðar eru eindregið hvattir til að halda sig heima og forðast ferðalög á meðan óveðrið gengur yfir. Jafnframt er fólk hvatt til að huga að lausamunum utandyra og sýna sérstaka aðgát.
Mikilvægt er að fylgjast vel með tilkynningum frá Veðurstofu Íslands, Vegagerðinni og lögreglu þar sem veður og færð geta breyst hratt. Íbúar eru einnig hvattir til að fylgjast með tilkynningum frá Fjallabyggð vegna mögulegra áhrifa veðursins á þjónustu og starfsemi sveitarfélagsins.
Nánari upplýsingar og uppfærðar tilkynningar: