Opnað hefur verið fyrir rafræna meðmælendasöfnun fyrir framboð til sveitarstjórnar

Yfirkjörstjórn Fjallabyggðar hefur opnað fyrir rafræna meðmælendasöfnun fyrir framboð til sveitarstjórnar á vef Ísland.is

Mælst er til þess að oddvitar framboða stofni söfnun en nafn þeirra og fæðingardagur birtist sem stofnandi söfnunar.

Einnig er heimilt að safna meðmælum á pappír en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmælendakerfið áður en frumritum meðmælanna er skilað inn ásamt framboðstilkynningu.

Hægt er að mæla með framboðum hér: Mæla með framboði í sveitarstjórnarkosningum 2026 | Ísland.is, þegar framboðin hafa stofnað söfnun meðmæla.

Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16.maí n.k. og er skilafrestur framboða til kl 12:00 þann 10.apríl n.k.