Opinn íbúafundur í Tjarnarborg með frambjóðendum til sveitarstjórnar í Fjallabyggð

Fjallbyggð býður íbúum til opins íbúafundar í tilefni komandi sveitarstjórnarkosninga, mánudaginn 11. maí kl. 19:30 í Tjarnarborg.

Fyrirkomulag fundar:

· Framsaga framboða: 6 mínútna framsaga hvers framboðs.

· Pallborð: Þrír fulltrúar frá hverju framboði sitja í pallborði og svara spurningum úr sal.

· Lokaorð: 3 mínútna lokaorð.

Fundarstjóri, Ingvar Erlingsson

Íbúar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn og eiga samtalið við frambjóðendur.

Léttar kaffiveitingar.