Ólafur Stefánsson kemur til Fjallabyggðar með fræðslu fyrir Þjálfara, iðkendur og foreldra.

mynd:vísir
mynd:vísir

Kæru foreldrar, iðkendur og þjálfarar, Það er okkur sérstakur heiður að segja ykkur frá því að Ólafur Stefánsson kemur til Fjallabyggðar og mun halda fræðslu fyrir þjálfara, iðkendur og foreldra um hugarfærni, sálrænan sveigjanleika og hvernig við getum saman skapað umhverfi þar sem börn og ungmenni dafna.

Ólafur hefur um árabil verið leiðandi í íslensku íþróttalífi, bæði sem afreksíþróttamaður og sem talsmaður heilbrigðrar og uppbyggilegrar þjálfunar barna og ungmenna. Undanfarin ár hefur hann sérstaklega miðlað þekkingu sinni á hugarfærni, leiðtogahæfni og jákvæðri þjálfun, þar sem hann sameinar rannsóknir, fræðilega þekkingu og áratuga reynslu úr íþróttum á hæsta stigi.

Við hjá Fjallabyggð erum afar ánægð með að geta boðið ykkur upp á þetta tækifæri. Markmiðið er ekki aðeins að miðla fróðleik heldur að við lærum saman og getum nýtt okkur það sem við lærum í sameiningu.

Tímasetningar

Þjálfarar
Miðvikudaginn 12. ágúst kl. 19:00–22:00

Iðkendur sem fara í 8. bekk í haust og eldri
Fimmtudaginn 13. ágúst kl. 16:30–18:30

Foreldrar iðkenda
Fimmtudaginn 13. ágúst kl. 20:00–21:30

📍 Menntaskólinn á Tröllaskaga, Ægisgata 13, Ólafsfirði

Af hverju er mikilvægt að mæta?

Okkur langar sérstaklega að hvetja sem flest ykkar til að gefa ykkur tíma til að mæta. Þegar þjálfarar, iðkendur og foreldrar fá sömu fræðslu og eiga sameiginlega upplifun verður auðveldara að halda áfram samtalinu og nýta það sem við lærum í daglegu starfi.

Við viljum skapa sameiginlegan skilning á því hvernig við getum stutt börnin okkar þegar á reynir – ekki aðeins með því að hjálpa þeim að verða betri í sinni íþrótt heldur einnig að verða sterkari, öruggari og betur í stakk búin til að takast á við áskoranir.

Þetta er því sameiginlegt verkefni okkar allra. Við erum ekki bara að senda börnin okkar í íþróttir – við erum öll hluti af því umhverfi sem þau vaxa og þroskast í.

Þess vegna vonumst við til þess að sem flestir sjái sér fært að mæta. Því fleiri sem taka þátt, því meiri möguleiki er á að við getum tekið þessi verkfæri með okkur áfram og skapað sameiginlega nálgun í íþróttastarfi barna og ungmenna í Fjallabyggð.