Ólafsfjörður – Þjóðvegur í þéttbýli, 3. áfangi

Framkvæmdir eru hafnar við Þjóðveg í þéttbýli, áfanga 3 á Ólafsfirði. Framkvæmdasvæðið nær frá Ægisbyggð til Tjarnarstígs að sunnanverðu og frá Ólafsvegi að Garðstíg að norðan.
Framkvæmdir standa til 16. september.

Skipt verður um gangstéttar að norðan, þær steyptar og breikkaðar. Að sunnanverðu verður malbikaður stígur í stað steyptrar gangstéttar. Þá verður lögð ný hitaveita undir stíginn að sunnanverðu og skipt um inntök í þeim húsum. Rarik mun einnig leggja nýjan rafstreng.