mynd: Julia Rantala tekið af www.landslag.is
Nýtt hættumat vegna ofanflóða til kynningar 2026
Hættumat var staðfest af umhverfisráðherra 11.janúar 2002. Endurskoðað hættumat liggur nú frammi til kynningar í ráðhúsinu á Siglufirði og í bókasafninu á Ólafsfirði að Bylgjubyggð.
Hættumat vegna ofanflóða á Siglufirði var unnið af Veðurstofu Íslands fyrir Fjallabyggð í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats með síðari breytingum.
Endurskoðað hættumat fyrir Siglufjörð eftir byggingu varnarvirkja var kynnt á íbúafundi 26. ágúst 2026 og liggur síðan frammi til kynningar í fjórar vikur.
Hættumatsgögnin fyrir Siglufjörð og Ólafsfjörð eru aðgengileg hér á vef Veðurstofunnar þar sem jafnframt má finna frekari upplýsingar.
https://vedur.is/ofanflod/haettumat/siglufjordur/
https://vedur.is/ofanflod/haettumat/olafsfjordur/
Athugasemdafrestur er 30. September 2026. Athugasemdir sendist til Fjallabyggðar, Gránugötu 24, 580 Siglufirði, eða með tölvupósti til fjallabyggd@fjallabyggd.is.