Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar kynntar

Miðvikudaginn 4. nóvember kl. 14:00–16:30 verða niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar kynntar á málþingi á vegum Mennta- og barnamálaráðuneytisins og Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands.

Á málþinginu verður sjónum beint að því hvernig opinberir aðilar geta nýtt niðurstöður rannsóknarinnar í stefnumótun, ákvarðanatöku og starfi með börnum og ungmennum.

Málþingið fer fram í Sögu, stofu S-114, í Háskóla Íslands og verður einnig í streymi 

Öll eru velkomin!