Neyðarsímar tímabundið óvirkir í Héðinsfjarðargöngum vegna framkvæmda

mynd: Vegagerðin
mynd: Vegagerðin

Vegagerðin vinnur nú að endurnýjun neyðarsímaskápa í Héðinsfjarðargöngum. Meðan á framkvæmdum stendur verða einhverjir neyðarsímar í göngunum tímabundið óvirkir og án sambands.

Ef óhapp eða neyðarástand kemur upp í göngunum eru vegfarendur hvattir til að hringja beint í Neyðarlínuna í síma 112.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá 9. til 29. nóvember 2026. Unnið verður alla virka daga frá kl. 08:00 til 19:00.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna sérstaka aðgát meðan á vinnu stendur, virða merkingar á vinnusvæðinu og fylgja fyrirmælum starfsmanna.

Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu Vegagerðarinnar.