Netaveiði er bönnuð í Hólsá!

Af gefnu tilefni er bent á að öll netaveiði í Hólsá í Siglufirði er bönnuð.

Veiði í Hólsá er einungis heimil börnum og unglingum 16 ára og yngri og er veiði heimil með spún, maðk og flugu.

Aukið eftirlit verður með veiði á svæðinu á næstu dögum.

Skipulags – og framkvæmdasvið Fjallabyggðar