Myndasöguhátíð Siglufjarðar, sem líklega er nyrsta myndasöguhátíð í heimi, mun fara fram 15 - 17. ágúst Þar munu íslenskir og erlendir listamenn og höfundar taka höndum saman með samfélaginu á Siglufirði og setja upp einstakan viðburð í kringum menningu myndasögunnar.
Um hátíðina
Myndasöguhátíðin á Siglufirði er til heiðurs myndasöguforminu þar sem fjölbreytileika miðilsins er gert hátt undir höfði. Fjölbreytt dagskrá verður í boði þar sem fólk á öllum aldri ætti að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hátíðin er styrkt af Fjallabyggð og nýtur einnig stuðnings frá nærsamfélaginu því fjöldi bæjarbúa leggur hátíðinni lið. Siglufjörður skipar sérstakan sess í íslenskri menningarsögu því auk þess að hafa verið miðstöð Síldarævintýrsins þá er hann einnig fæðingarstaður íslenskrar myndasöguútgáfu. Það var hér sem Siglufjarðar Prentsmiðjan skráði sig í sögubækurnar á fjórða áratug 20. aldar og var fyrst til að gefa út myndasögur á íslensku. Það er í þessum fagra firði sem við erum stolt af því að halda fyrstu Myndasöguhátíð Íslands.
Frekari upplýsingar og nákvæma dagskrá má nálgast á vefsíðu hátíðarinnar comicsfestival.is/is
Ókeypis aðgangur er á alla viðburði hátíðarinnar.
Tenglar
Facebook: SiglufjordurComicsFestival
Instagram: siglufjordurcomicsfest