Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og
iðnaðarráðuneytis við Eyþing. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Norðausturlandi.
Áherslur ársins 2013
Menningarráðið leggur jafnan áherslu á að þau verkefni sem hljóta styrki efli á einhvern hátt samstarf og/eða samvinnu í
menningarmálum á Norðurlandi eystra eða dragi fram menningarleg sérkenni svæðisins. Auk þessa hefur ráðið ákveðið að
árið 2013 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
· Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðarlaga eða listgreina. Sérstaklega er horft til verkefna
sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja íbúa á Norðurlandi eystra.
· Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum, listnema og leikmanna.
· Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar, lista og menningartengdrar ferðaþjónustu.
· Verkefni sem fela í sér samstarf við önnur lönd á sviði menningar og lista.
Umsóknarfrestur er til og með 10. desember 2012. Úthlutun fer fram í febrúar.
Styrkþegar verða að hafa skilað inn greinargerð vegna fyrri verkefna til þess að geta sótt um vegna ársins 2013. Úthlutað verður
einu sinni á árinu 2013.
Verkefnum sem hljóta styrki þarf að vera lokið fyrir árslok 2013.
Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu
Eyþings www.eything.is eða hjá menningarfulltrúa Eyþings, Strandgötu 29, 3. hæð. Umsækjendur eru hvattir til
að kynna sér úthlutunarreglur menningarráðs á heimasíðu Eyþings www.eything.is
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277 eða á netfangið
menning@eything.is