Meirihluti S-lista og H-lista samþykkti á 274. fundibæjarstjórnar Fjallabyggðar að Jóhann K. Jóhannsson, forseti bæjarstjórnar, undirriti ráðningarsamning við Hafdísi Huld Björnsdóttur í starf bæjarstjóra Fjallabyggðar. Hafdís Huld tekur við starfinu 1. september næstkomandi.
Hafdís var á meðal 22 umsækjenda eftir að staða bæjarstjóra var auglýst en tveir drógu umsóknir sínar til baka í ráðningarferlinu. Átta voru boðaðir í fyrsta viðtal og þrír í seinna viðtal. Ráðningarskrifstofan Intellecta sá um ráðningarferlið, frá auglýsingu til ráðningar og ferlið leitt af fulltrúa skrifstofunnar á öllum stigum. Umsækjendur fóru í gegnum hæfnismat og viðtöl þar sem á endanum Hafdís Huld skoraði hæst.
Í umsögn Intellecta um Hafdísi segir meðal annars: „Meginþráður í starfsferli Hafdísar verið að leiða breytingar, þróunarverkefni og stefnumótun þar sem samhæfa þarf fjölbreytta hagsmuni og sjónarmið. Hún hefur meðal annars stýrt umfangsmiklum verkefnum fyrir ráðuneyti og sveitarfélög þar sem fjölmargir hagaðilar tóku þátt í mótun framtíðarsýnar og aðgerðaráætlana. Í viðtali gaf hún góð dæmi um verkefni þar sem hún þurfti að leiða fjölbreyttan hóp að sameiginlegri niðurstöðu þrátt fyrir ólík sjónarmið og samkeppnishagsmuni. Hún lýsti einnig reynslu sinni af því að takast á við ágreining og taka erfiðar ákvarðanir þegar samstarf eða árangur stóð ekki undir væntingum. Umsagnaraðilar nefndu að hún væri mjög fær í breytingastjórnun, næði að fá fólk með sér og sé fær um að sætta ólík sjónarmið á uppbyggilegan hátt.“
Meirihluti bæjarstjórnar bíður Hafdísi Huld og eiginmanni hennar, Bjarna Eyfjörð ásamt börnum þeirra tveimur, velkomin til Fjallabyggðar.