Málefnasamningur meirihluta bæjarstjórnar Fjallabyggðar 2026-2030

Jóhann K. Jóhannsson, oddviti S-lista Jafnaðarmanna og óháðra í Fjallabyggð og Helgi Jóhannsson, oddviti H-listans fyrir heildina í Fjallabyggðar við undirritun meirihlutasamstarfs.
Jóhann K. Jóhannsson, oddviti S-lista Jafnaðarmanna og óháðra í Fjallabyggð og Helgi Jóhannsson, oddviti H-listans fyrir heildina í Fjallabyggðar við undirritun meirihlutasamstarfs.

Málefnasamningur nýs meirihluta bæjarstjórnar Fjallabyggðar var kynntur á fyrsta fundi bæjarstjórnar í gær.

H‑listinn fyrir heildina í Fjallabyggð og S‑listi Jafnaðarmanna og óháðra í Fjallabyggð hafa undirritað málefnasamning um meirihlutasamstarf fyrir kjörtímabilið 2026–2030. Markmiðið að byggja upp sterkt, fjölskylduvænt og sjálfbært samfélag þar sem innviðir, þjónusta og atvinnulíf fá að blómstra.

Meirihlutinn leggur sérstaka áherslu á uppbyggingu innviða, ábyrga fjármálastjórn, öflugt samfélag fyrir fjölskyldur, betri samgöngur og skýrari framtíðarsýn í umhverfis- og skipulagsmálum.

Helstu áherslur samningsins:

Samgöngur
Samgöngumál eru sett í forgang, og verður unnið markvisst að því að tryggja að framkvæmdir við Fljótagöng hefjist sem fyrst. Í framhaldinu verður barist fyrir því að göng milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur komist á dagskrá. Þá verður lögð áhersla á öryggi í jarðgöngum, endurskoðun umferðaröryggisáætlunar og bættar samgöngur milli byggðakjarna.

Fjölskyldumál og samfélag
Meirihlutinn hyggst efla Fjallabyggð sem aðlaðandi búsetukost fyrir fjölskyldur. Áhersla verður lögð á uppbyggingu leiksvæða, eflingu íþróttamannvirkja og menningarstarfs. Öll börn í Fjallabyggð, 18 ára og yngri, fá frítt í sund, og skoðað verður að innleiða lýðheilsukort fyrir íbúa.

Atvinnulíf og nýsköpun
Stuðningur við atvinnulíf verður efldur með reglulegum heimsóknum kjörinnar fulltrúa til fyrirtækja og markvissri markaðssetningu sveitarfélagsins og hafna. Þrýst verður á ríkið um fjölgun opinberra starfa og tryggt að raforku- og vatnsöryggi sé fullnægjandi.

Fjármál og stjórnsýsla
Meirihlutinn leggur áherslu á ábyrga fjármálastjórn, gagnsæi og aukna upplýsingagjöf til íbúa. Opnað verður fyrir mælaborð með lykiltölum rekstrar og leitast við að lækka álögur á íbúa og fyrirtæki án þess að skerða þjónustu. Stafræn vegferð sveitarfélagsins verður efld.

Umhverfis- og skipulagsmál
Umhverfismál verða sett í forgang. Áhersla verður á snyrtilegri ásýnd bæjarkjarna, endurbætur á móttökustöðvum, lagfæringu gangstétta og gönguleiða og uppbyggingu tjaldsvæða.

Stjórnsýsla og þjónusta
Innleiðing þjónustustefnu sveitarfélaga verður kláruð og frístundastyrkur hækkaður í 70.000 kr. í þrepum til ársins 2028. Leikskólagjöld verða endurskoðuð með það að markmiði að lækka þau, og unnið verður að lausnum fyrir vistunarþörf utan hefðbundins opnunartíma leik- og grunnskóla, sérstaklega yfir sumartímann.

Markmið samningsins
Meirihlutinn segir samninginn byggja á sameiginlegri sýn um að Fjallabyggð verði sveitarfélag þar sem „öllum líður vel, ungt fólk sér tækifæri til að skjóta rótum, fyrirtæki blómstra og eldra fólk býr við öryggi og virðingu.

Nánar má lesa um málefnasamninginn á tengli hér að neðan

Málefnasamningur meirihluta bæjarstjórnar 2026-2030