Losun á pappír og plasti frestast til morguns

Vegna hvassviðris hefur verið ákveðið að fresta sorphirðu á Siglufirði í dag, þriðjudaginn 10. nóvember.

Unnið var að hirðu á pappír og plasti en vegna veðuraðstæðna er ekki talið öruggt að halda sorphirðunni áfram þar sem hætta er á að úrgangur fjúki.

Stefnt er að því að halda sorphirðu áfram strax í fyrramálið, miðvikudaginn 11. nóvember, þegar vind hefur lægt.

Íbúar eru beðnir um að sýna þessu skilning.