Lokun á aðkeyrslu að íþróttahúsi og grunnskóla í Ólafsfirði vegna snjósleðamóts
Föstudaginn 10. apríl og laugardaginn 11. apríl fer fram snjósleðamót í Ólafsfirði. Af þeim sökum verður aðkeyrsla að íþróttahúsinu og grunnskólanum lokuð frá kl. 8:00 á föstudagsmorgni og þar til móti lýkur síðdegis á laugardag.
Á föstudaginn mun skólarútan fara frá Olís/hótelplaninu. Foreldrar yngstu barnanna eru beðnir um að fylgja þeim í og úr rútunni.
Fólk verður á staðnum til að gæta umferðar milli plansins og skólans þannig að þau börn sem fara á æfingar í íþróttahúsinu eftir hádegi komist örugglega yfir götuna.
Bílastæði á svæðinu verða takmörkuð. Leiðinni milli MTR og grunnskólans verður þó haldið opinni vegna öryggismála, en ekki er ætlast til að hún verði nýtt sem aðkeyrsla að skólanum eða íþróttahúsinu.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.