Lokanir í Múlagöngum.

Lokanir í Múlagöngum.

Næstkomandi mánudags- og þriðjudagskvöld (7 og 8 september) og fram undir morgun (8 og 9 september), verður unnið við að setja upp nýjar aksturshurðir í gangnamunnum Múlaganga. Umferðartafir verða frá kl 19:00 til miðnættis og verður umferð hleypt í gegn eftir því sem vinna leyfir. Eftir miðnætti til kl 04:00, báðar næturnar, verða göngin lokuð allri umferð. Eftir kl 04:00 og fram undir morgun verður umferð hleypt í gegn eftir því sem vinna leyfir þar til vinna klárast.

Vonast er til að framkvæmdirnar valdi sem minnstum óþægindum og þökkum við vegfarendum fyrir sýndan skilning og þolinmæði meðan á þeim stendur.