Leirutangi: Kynning á skipulagstillögu á vinnslustigi

Breyting á deiliskipulagi Leirutanga á Siglufirði og breyting á aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020–2032

Fimmtudaginn 7. maí kl. 17:00 verða kynntar tillögur að skipulagsbreytingum á Leirutanga í sal á 2. hæð í ráðhúsi Fjallabyggðar á Siglufirði. Þar mun skipulagsráðgjafi kynna tillögurnar og sitja fyrir svörum varðandi skipulagstillögurnar og veita upplýsingar þeim sem þess óska.

Að kynningu lokinni og eftir umfjöllun skipulags- og umhverfisnefndar verða tillögurnar auglýstar með að minnsta kosti sex vikna athugasemdafresti, þar sem allir hafa tækifæri til að koma á framfæri ábendingum og athugasemdum.