Lausar stöður við Grunnskóla Fjallabyggðar

Grunnskóli Fjallabyggðar leitar að liðsauka í frábæran hóp starfsmanna skólans. Leitað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir til að viðhalda og byggja upp öflugt skólasamfélag af dugnaði og atorku samkvæmt gildandi fræðslustefnu - með virðingu, metnað og gleði að leiðarljósi.

Grunnskóli Fjallabyggðar er ríflega 220 nemenda skóli með starfsstöðvar í Ólafsfirði og á Siglufirði. Nánari upplýsingar um skólann má finna á hér 

Gildi skólasamfélagsins í Fjallabyggð eru: Kraftur – Sköpun – Lífsgleði

Eftirfandi stöður eru í boði:

· Bekkjarumsjón á yngsta- og miðstigi.

· Hönnun og smíði á yngsta, mið- og unglingastigi.

· Textílmennt á yngstastigi.

· Heimilisfræði á yngsta, mið- og unglingastigi.

· Íþróttir – hlutastarf, tímabundin ráðning.

Ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst 2026.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi KÍ og Sambands íslenskra sveitafélaga.

Menntunar- og hæfnikröfur:

· Leyfi til að nota starfsheitið kennari.

· Reynsla af kennslu í grunnskóla er æskileg.

· Góð kunnátta á notkun tölvu- og starfrænna lausna í skólastarfi.

· Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum.

· Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.

Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið ásamt upplýsingum um tvo umsagnaraðila. Umsóknum skal skilað á netfangið asabjork@fjallaskolar.is Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknafrestur rennur út. Fjallabyggð áskilur sér rétt til að hætta við ráðingu í einstaka stöðu og/eða auglýsa að nýju.

Upplýsingar um stöfin veitir Ása Björk Stefánsdóttir, Skólastýra Grunnskóla Fjallabyggðar í gegnum netfangið asabjork@fjallaskolar.is eða í síma 695-9998

Umsóknafrestur til til og með 26. maí 2026