Lausar eru tvær 75% stöður stuðningsfulltrúa við Grunnskóla Fjallabyggðar fyrir skólaárið 2026-2027.
Um er að ræða störf í báðum skólahúsum í Ólafsfirði og Siglufirði
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt í lifandi umhverfi þar sem áhersla er lögð á góð samskipti.
Helstu verkefni:
- Að sinna stuðningi við nemanda/nemendur inn í bekk og fylgja eftir í kennslustundir í öðrum námsgreinum.
- Taka þátt í gæslu í frímínútum eftir atvikum.
Hæfnikröfur:
- Hafa náð 20 ára aldri
- Hafa gott vald á íslensku.
- Eiga auðvelt með samskipti og samvinnu.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og launanefndar sveitarfélaga.
Umsókn um starfið skal skilað, ásamt kynningarbréfi og/eða ferilskrá, í tölvupósti á netfang Guðrúnar Unnsteinsdóttur skólastýru, gudunn@fjallaskolar.is
Umsækjendur þurfa að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.
Nánari upplýsingar fást hjá Guðrúnu skólastjóra í síma 464-9150 eða 863-2604
Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst 2026.