Leikskóli Fjallabyggðar óskar eftir að ráða leikskólakennara eða leiðbeinanda til starfa, vinnutími er frá kl. 8:15 til 16:15.
Hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Stundvísi.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur.
- Góð íslenskukunnátta, skilyrði B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 12. sept. 2026.
Launakjör eru skv. samningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga.
Leikskóli Fjallabyggðar er staðsettur á tveimur starfsstöðvum, Leikskálum á Siglufirði og Leikhólum í Ólafsfirði. Á báðum stöðum eru börn á aldrinum 1–6 ára. Börn starfsmanna Leikskóla Fjallabyggðar fá 20% afslátt af leikskólagjöldum.
Leikskólinn lokar kl. 14:00 á föstudögum sem er hluti af vinnustyttingu starfsmanna. Sjá nánar um starf leikskólans á heimasíðum hans, www.leikskolinn.is/leikskalar og www.leikskolinn.is/leikholar.
Nánari upplýsingar veitir Kristín María H. Karlsdóttir, leikskólastjóri, á netfangið kristinm@fjallaskolar.is.