Kynning á endurskoðuðu ofanflóðahættumati fyrir Siglufjörð og Ólafsfjörð eftir byggingu varnarvirkja

Endurskoðað hættumat vegna ofanflóða fyrir Siglufjörð og Ólafsfjörð eftir byggingu varnarvirkja verður kynnt á opnum íbúafundi í fundarsal ráðhússins við Gránugötu 24 þann 26. ágúst kl. 17:00.

Dagskrá:

  1. Kristín Martha Hákonardóttir, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti: Uppbygging varnarvirkja gegn ofanflóðum í Fjallabyggð. Hlutverk Ofanflóðasjóðs
  2. Tómas Jóhannesson, Veðurstofu Íslands: Endurskoðað hættumat vegna ofanflóða fyrir Siglufjörð og Ólafsfjörð
  3. Umræður

Uppbygging ofanflóðavarnarvirkja til þess að tryggja öryggi byggðarinnar á Siglufirði hefur staðið síðan 1998–1999 þegar leiðigarðarnir Stóri- og Litli-Boli voru reistir til þess að verja suðurbæinn fyrir snjóflóðum úr Jörundarskál og Strengsgiljum. Í framhaldinu voru þvergarðar ofan endilangs bæjarins reistir á árunum 2003–2008 og uppsetning stoðvirkja á upptakasvæðum í Hafnarfjalli og Gróuskarðshnjúki stóð með nokkrum hléum á árunum 2004–2024. Leiðigarður til þess að verja hjúkrunar- og dvalarheimilið við Hornbrekku á Ólafsfirði var reistur 2009–2010. Hættumat vegna ofanflóða fyrir Siglufjörð og Ólafsfjörð hefur verið endurskoðað að teknu tilliti til allra þessara varnarmannvirkja, m.a. með nýjum reiknilíkönum og þekkingu sem aflast hefur í snjóflóðum á varnargarða síðan leiðigarðarnir undir Jörundarskál og Strengsgiljum voru hannaðir. Á kynningarfundinum verður farið yfir endurskoðaða hættumatið og spurningum svarað. Hættumatið mun síðan liggja frammi til kynningar í fjórar vikur og gefst íbúum tækifæri til þess að koma athugasemdum á framfæri. Hættumatið tekur gildi með staðfestingu umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að loknum athugasemdafresti, með þeim breytingum sem kunna að verða gerðar til þess að taka tillit til athugasemda sem berast.