Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga í Fjallabyggð þann 16. maí 2026 liggur frammi í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði og bókasafninu á Ólafsvegi 4, Ólafsfirði, á auglýstum opnunartíma virka daga fram til 16. maí.
Kjörskráin miðast við skráningu lögheimilis í sveitarfélagi eins og það er samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár kl. 12:00 á hádegi 38 dögum fyrir kjördag. Viðmiðunardagur kjörskrár var því 8. apríl sl.
Kjósendum er einnig bent á vefinn Þjóðskrá en þar má m.a. finna hvar kjósendur eru á kjörskrá. Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskránni.
Athugasemdum við kjörskrá skal beint til Þjóðskrár Íslands. Ef við á má gera leiðréttingar á kjörskrá fram á kjördag.
Kjósendum er einnig bent vefinn https://www.kosningar.is þar sem er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar.
Kjörstaður í Ólafsfirði verður í Menntaskólanum á Tröllaskaga og á Siglufirði í Ráðhúsinu, 2. hæð.
Yfirkjörstjórn